Skeleton people, töfrateppi og orkuleysi
jæja beibí.. lét verða af þvi í gær að fara í dungidungi timan sem eg er búin að vera á leiðinni í í uþb eitt og hálf ár. Þetta er svo mögnuð upplifun. Nú er ég sannfærð um að töfrateppið hans alladín er/var til. ég lá amk á fjarskyldum ættingja þess í gær og fann greinilega fyrir kröftum þess! Eftir skass í gær var slökkt á mér og eg hef ekki orðið að neinu gagni síðan þá! mest megnis verið að fylgjast með öðrum framkvæma hlutina og verið að dútla mér við hin ýmsu smáverk sem hafa afskaplega lítin og ómerkilegan tilgang. Svo virðist sem orkan hafi yfrgefið mig og farið í heilsuspa til uppherslu og eflingar, trúi þvi að það sé væntanlegt seinniparinn.
Búin að hóa saman í matargleði í kvöld.. sem er mest ljómandi skemmtilegt... planið er að vera svo dugleg í iðnaðarmannagerfinu á morgun (ætti að fá mér svona gallaskyrtu, gallabuxur, hjálm... svona eins og hrikalega cool gæinn í W M C A!!!!!.. stebba gæti verið indjáninn og snorri gæinn í leðurbuxunum!!! eeehhh !!!! , svo er það koben á sunnudaginn... aaa ljúft... kem með diet coke... en engar væntingar.. við gerum okkur báðar full grein fyrir þvi að klukkan verður ókristileg þegar ferðatími á sér stað og þvi ekki hægt að veita loforð vegna margra frávika sem eiga sér stað á þessum tiltekna tima!
Annars svona í lokin þá hefur þessi linkur veitt mér ómælda ánægju í dag ..
http://www.theonion.com/news/index.php?issue=4052&n=1&id=3964

0 Comments:
Post a Comment
<< Home